Erlent

Tvö símtöl á ellefu dögum

Lesið um leiðtogann Fréttaþyrstir Havanabúar lesa dagblaðafréttir af Kastró.
Lesið um leiðtogann Fréttaþyrstir Havanabúar lesa dagblaðafréttir af Kastró. MYND/AP

Fídel Kastró hringdi á föstudag til kúbverskra stjórnmálamanna og forseta Venesúela, Hugo Chavez, að því er flokksblaðið Granma greindi frá um helgina. Símtölin voru fyrsta lífsmarkið frá Kastró í 11 daga.

Tilefni símtalanna voru annars vegar komandi þingfundur Kúbuþings, og hins vegar sigur Chavez í forsetakosningum í Venesúela. Talið er að símtölin hafi verið leið til að þagga niður í þrálátum orðrómi um að Kastró eigi skammt eftir ólifað.

Þrátt fyrir símtölin dylst engum að Kastró er helsjúkur, en síðast er hann kom fram opinberlega var hann bæði horaður og veiklulegur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×