Erlent

Fjórðungur kjósenda sam-sinnir Le Pen

Le Pen hefur stuðning fjórða hvers Frakka í stefnunni gegn innflytjendum.
Le Pen hefur stuðning fjórða hvers Frakka í stefnunni gegn innflytjendum. MYND/AFP

Um fjórðungur franskra kjósenda segist í grundvallaratriðum vera sammála stefnu Jean-Marie Le Pens, yfirlýsingaglaða þjóðernissinnans yst á jaðri franskra stjórnmála. Þetta kemur fram í niðurstöðum viðhorfskönnunar TNS-Sofres, fimm mánuðum áður en Frakkar ganga að kjörborðinu í forsetakosningum.

Samkvæmt könnuninni, sem birt var í dagblaðinu Le Monde, eru 26 prósent Frakka sammála Le Pen. Sjötíu prósent sögðust ósammála honum.

Le Pen hefur heitið því að taka tafarlaust upp „núll aðflutnings“-stefnu, næði hann kjöri til forseta. Hann fékk næstflest atkvæði í fyrri umferð síðustu forsetakosninga árið 2002, 17 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×