Erlent

Nágrannar fái kjarnorkutækni

Mahmoud Ahmadinejad heldur fast við kjarnorkuáætlun.
Mahmoud Ahmadinejad heldur fast við kjarnorkuáætlun. MYND/AP

Íranar munu halda kjarnorkuáætlun sinni til streitu, jafnvel þótt Sameinuðu þjóðirnar ákveði refsiaðgerðir. Þessu lýstu bæði utanríkisráðuneytið í Teheran og Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti yfir í gær.

Ahmadinejad sagði einnig að land hans væri tilbúið til að aðstoða nágrannaríki sín við að byggja upp kjarnorkutækni þeirra. Fyrir viku tilkynntu arabaríki um áætlanir sínar um sameiginlega kjarnorkuáætlun.

„Íran er tilbúið að afhenda ríkjum á okkar svæði verðmætan afrakstur og reynslu í friðsamlegri notkun kjarnorkutækni, sem hreins orkugjafa og arftaka olíu,“ sagði Ahmadinejad. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og víðar á Vesturlöndum gruna Írana aftur á móti um að stefna að því að koma sér upp kjarnorkuvopnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×