Erlent

Mótmæla drápi í lögregluskothríð

Al Sharpton Mótmælir drápi á óvopnuðum manni.
Al Sharpton Mótmælir drápi á óvopnuðum manni. MYND/AP

Séra Al Sharpton og aðrir mannréttindaleiðtogar í Bandaríkjunum stóðu í fyrradag fyrir þögulli fjöldagöngu á fjölfarinni verslunargötu á Manhattan í New York. Þeir vilja mótmæla drápi lögreglunnar á Sean Bell, óvopnuðum blökkumanni á brúðkaupsdegi hans í nóvember.

Bell lenti ásamt tveimur félögum sínum í kúlnahríð lögreglu í aðgerð gegn vændi fyrir utan nektardansstað, þar sem Bell hélt steggjapartí. Lögreglan sagðist hafa talið þá vopnaða, en engin vopn fundust.

„Margir eru hér til að kaupa glingur og leikföng,“ sagði Al Sharpton. „Við viljum kaupa réttlæti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×