Erlent

Óðagot vegna músaflótta

Yfir hundrað farþegar í sádiarabískri flugvél urðu felmtri slegnir þegar fjöldi músa hljóp skyndilega um flugvélina. Mýsnar höfðu sloppið úr poka eins farþegans og farið á flakk um farþegarýmið, að því er greint var frá á fréttavef BBC.

Flugvélin var í tæplega þrjátíu þúsund feta hæð þegar mýsnar létu til skarar skríða. Sumar féllu á höfuð farþeganna og var ferðalöngunum að vonum brugðið. Eigandi pokans var handtekinn við lendingu, en ekki er vitað hvernig honum tókst að koma pokanum um borð eða hvers vegna hann ferðaðist með fylgdarlið af þessu tagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×