Erlent

Hundruð lýðræðissinna handteknir

Óeirðalögregla fjarlægði um 400 mótmælendur í Moskvu á laugardag.
Óeirðalögregla fjarlægði um 400 mótmælendur í Moskvu á laugardag. MYND/AP

Yfir tvö þúsund manns tóku þátt í sjaldséðum mótmælum gegn ríkisstjórninni í Moskvu í fyrradag. Mótmælendur sökuðu Kremlarstjórnina um valdstjórnartilburði og mótmæltu breytingum á kosningalöggjöf.

Yfirvöld handtóku um 80 mótmælendur og hindruðu um 320 manns í að vera viðstaddir mótmælin með því að handtaka fólk í lestum og strætisvögnum, að sögn skipuleggjenda, en þeir hvöttu stjórnvöld til að snúa við því sem þeir kalla andlýðræðislega þróun.

Mótmæli héldu áfram á sunnudag. Mótmælendur héldu á spjöldum í minningu Önnu Politkovskaju og fleiri rússneskra blaðamanna sem hafa verið myrtir, og hrópuðu „niður með lögregluríkið“.

„Á næsta ári ættu allir að taka ákvörðun um hvað við gerum úr landi okkar,“ sagði fyrrverandi forsætisráðherra, Mikhaíl Kasjanov, sem er sagður hyggja á forsetaframboð árið 2008. „Viljum við leyfa þessum mönnum að halda áfram með lögleysuna eða munum við gera það að markmiði okkar að byggja upp lýðræði?“ spurði Kasjanov.

„Þessi mótmæli þýða að yfirvöld eru ekki eins einráð og öflug og áður,“ sagði skákmeistarinn Garrí Kasparov, en hann var einn af skipuleggjendum mótmælanna. „Yfirvöld eru hrædd um að einn góðan veðurdag munum við segja að nú sé komið nóg,“ sagði hann.

Mótmælendur hrópuðu „Frelsi!“ og héldu á borðum með slagorðunum „Ekkert lögregluríki“ og „Rússland án Pútíns“.

Fyrrverandi KGB-foringinn Vladimír Pútín hefur verið sakaður um að takmarka fjölmiðlafrelsi og herða á miðstýringu síðan hann varð forseti árið 2000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×