Erlent

John Edwards fer í framboð

Vill verða forseti Bandaríkjanna.
Vill verða forseti Bandaríkjanna. MYND/AP

 John Edwards, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður frá Iowa, mun sækjast eftir því að verða forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í bandarísku forsetakosningunum árið 2008. Þetta mun hann tilkynna seinna í mánuðinum, samkvæmt heimildarmönnum í Demókrataflokknum.

Edwards var varaforsetaefni demókrata í kosningunum árið 2004, þegar John Kerry tapaði fyrir sitjandi forseta, George W. Bush. Aðrir sem hafa verið orðaðir við framboð eru öldungadeildarþingmennirnir Hillary Clinton frá New York og Barack Obama frá Illinois.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×