Kröfugerð Þjóðverja æsir Pólverja 17. desember 2006 06:30 Lech Kaczynski, forseti Póllands, á blaðamannafundi í Brussel á föstudag. Hann segir kröfugerð þýsku samtakanna „hrinda af stað mjög hættulegri atburðarás“. MYND/AP
Samtök sem kalla sig „Prússneska umboðsnefndin" og segjast gæta hagsmuna Þjóðverja sem flæmdir voru burt af landar- og fasteignum sínum á landsvæðum sem gefin voru Póllandi eftir síðari heimsstyrjöld, hafa skotið kröfugerð sinni til Mannréttindadómstól Evrópu, á þeim grundvelli að eignasviptingin og brottreksturinn hafi verið brot á Mannréttindasáttmála Evrópu. Farið er fram á að eignunum verði skilað eða skaðabætur greiddar fyrir þær, að því er talsmaður samtakanna, Gerwald Stanko, tjáði AP á föstudag. Þótt samtökin séu alger jaðarhópur og hafi ekki umboð til að tala fyrir munn nema mjög lítils hluta þeirra milljóna Þjóðverja sem þurftu að flýja heimkynni sín í því sem áður voru austurhéruð Þýskalands - en aðeins um eitt þúsund manns standa að baki „Prússnesku umboðsnefndinni" - þá veldur kröfugerð hennar gríðarlegum hugaræsingi meðal Pólverja, enda hafa pólskir fjölmiðlar verir ósparir á fréttaflutning af málinu. Hinn þjóðernissinnaði forseti Póllands, Lech Kaczynski, sagði að kröfugerðin myndi „hrinda af stað mjög hættulegri atburðarás". Þýsk stjórnvöld hafa gefið mjög skýrt til kynna að þau styðji ekki kröfur samtakanna og sameiginleg lögfræðinganefnd beggja ríkisstjórna komst að þeirri niðurstöðu að ekki væru lagalegar forsendur fyrir kröfum um slík eignaskil. Þá hafa regnhlífarsamtök brottflæmdra í Þýskalandi, Bund der Vertriebenen (BdV), ítrekað lýst því yfir að þau hafi ekkert með athafnir „Prússnesku umboðsnefndarinnar" að gera. „Við höfum lýst vanþóknun okkar á þessu ótal sinnum," sagði Erika Steinbach, forseti BdV, en hún á einnig sæti á þýska Sambandsþinginu. „Prússneska umboðsnefndin“ Dyrabjalla hins umdeilda félags í Düsseldorf.MYND/AP .
Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Innlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Fleiri fréttir Opna aftur á flugumferð í El Paso en útskýra enn ekkert Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Sjá meira