Erlent

Reynir að blása lífi í friðarferlið

Tony Blair
Tony Blair

 Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hélt í gær til Tyrklands og ætlar að halda þaðan áfram til Mið-Austurlanda.

Blair hyggst nota þessa ferð til þess að efla trú Tyrkja á að þeir eigi enn góða möguleika á inngöngu í Evrópusambandið, og síðan ætlar hann að reyna hvað hann getur til þess að koma friðarferli milli Palestínumanna og Ísraela í gang á ný.

„Það getur verið að mér takist það ekki,“ sagði Blair, „en ég ætla að reyna vegna þess að friður í Mið-Austurlöndum er ósigur hryðjuverkamanna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×