Erlent

Kynskipta- aðgerð kærð

Kínversk hjón hafa kært sjúkrahús í Suður-Kína fyrir að hafa gert kynskiptaaðgerð á eina syni þeirra, því þar með varð úti um vonir þeirra um að eignast afkomendur í beinan karllegg. Fara hjónin fram á skaðabætur og að læknar sjúkrahússins geri uppkomið barn þeirra aftur að karlmanni.

Samkvæmt frétt í Yancheng-dagblaðinu munu foreldrarnir og sonurinn hafa misst allt samband sín í millum þar til foreldrarnir sáu dóttur sína í sjónvarpsþætti í september. Í kjölfarið gerðu foreldrarnir og ættingjar uppsteit á sjúkrahúsinu og tóku yfir eina deildina í ellefu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×