Erlent

Sagður hafa logið að þingnefnd

Ef Galloway verður fundinn sekur um að hafa logið að þingnefndinni gæti hann átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi.
Ef Galloway verður fundinn sekur um að hafa logið að þingnefndinni gæti hann átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi. MYND/AP

Breski þingmaðurinn George Galloway þverneitar að hafa borið ljúgvitni fyrir bandarískri þingnefnd síðastliðið vor, eins og nýjar upplýsingar eru sagðar benda til að hann hafi gert.

Þingnefndin sem um ræðir birti í maí síðastliðnum skýrslu um spillingu í tengslum við olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak. Tveir menn eru þar nefndir til sögunnar og því haldið fram að þeir hafi fengið nokkrar milljónir olíutunna í umboðssölu frá Saddam Hussein, fyrrvernadi forseta Íraks. Gefið er í skyn að þetta hafi verið nokkurs konar mútugreiðslur og með þessu hafi Saddam keypt sér vestræna bandamenn.

Málið olli miklu fjaðrafoki í Bretlandi og Frakklandi enda eru báðir mennirnir sem nefndir eru í skýrslunni afar þekktir stjórnmálamenn. Annar þeirra var George Galloway, fyrrverandi þingmaður Verkamannaflokksins og hatrammur andstæðingur Íraksstríðsins. Hann kom fyrir nefndina stuttu eftir að skýrslan birtist og vísaði öllum ásökunum til föðurhúsanna.

Nú segist þingnefndin hafa nýjar upplýsingar undir höndum sem staðfesti að ágóði af olíusölu upp á rúmar níu milljónir íslenskra króna hafi fundist inni á bankareikningi fyrrverandi eiginkonu Galloways. Þrátt fyrir það heldur þingmaðurinn enn fram sakleysi sínu. Ef Galloway verður fundinn sekur um að hafa logið að þingnefndinni gæti hann átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×