Sagður hafa logið að þingnefnd 26. október 2005 07:39 Ef Galloway verður fundinn sekur um að hafa logið að þingnefndinni gæti hann átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi. MYND/AP
Breski þingmaðurinn George Galloway þverneitar að hafa borið ljúgvitni fyrir bandarískri þingnefnd síðastliðið vor, eins og nýjar upplýsingar eru sagðar benda til að hann hafi gert. Þingnefndin sem um ræðir birti í maí síðastliðnum skýrslu um spillingu í tengslum við olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak. Tveir menn eru þar nefndir til sögunnar og því haldið fram að þeir hafi fengið nokkrar milljónir olíutunna í umboðssölu frá Saddam Hussein, fyrrvernadi forseta Íraks. Gefið er í skyn að þetta hafi verið nokkurs konar mútugreiðslur og með þessu hafi Saddam keypt sér vestræna bandamenn. Málið olli miklu fjaðrafoki í Bretlandi og Frakklandi enda eru báðir mennirnir sem nefndir eru í skýrslunni afar þekktir stjórnmálamenn. Annar þeirra var George Galloway, fyrrverandi þingmaður Verkamannaflokksins og hatrammur andstæðingur Íraksstríðsins. Hann kom fyrir nefndina stuttu eftir að skýrslan birtist og vísaði öllum ásökunum til föðurhúsanna. Nú segist þingnefndin hafa nýjar upplýsingar undir höndum sem staðfesti að ágóði af olíusölu upp á rúmar níu milljónir íslenskra króna hafi fundist inni á bankareikningi fyrrverandi eiginkonu Galloways. Þrátt fyrir það heldur þingmaðurinn enn fram sakleysi sínu. Ef Galloway verður fundinn sekur um að hafa logið að þingnefndinni gæti hann átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira