Erlent

Fyrsta gervitungli Norðmanna skotið á loft

Fysta gervitungli Norðmanna var skotið á loft í gær og heppnaðist geimskotið vel. Yfir áttatíu norskir nemendur tóku þátt í að hanna og smíða gervitunglið. Vefútgáfa norska dagblaðsins Aftenposten segir frá þessu en gervitunglið vegur um eitt kíló.

Gervitunglinu sem gengur undir heitinu NCUBE-2 var skotið á loft frá Plesetsk í Rússlandi. Það hefur tvíþætt hlutverk, annars vegar að fylgjast með ferðum norska flotans og hins vegar með ferðum hreindýra í Hardangervidda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×