Erlent

Undirstrika sterk tengsl þjóðanna

 
 

Norska konungsfjölskyldan kom í sína fyrstu opinberu heimsókn til Bretlands í gær. Elísabet Bretlandsdrottning segir heimsóknina undirstrika sterk tengsl þjóðanna.

Tekið var á móti Haraldi Noregskonungi og eiginkonu hans, Sonju drottningu, með viðhöfn, en með þeim í för eru Hákon krónprins og Mette-Marit, eiginkona hans, sem lét sig hafa það að vera með, þótt hún væri komin tæplega átta mánuði á leið. Norska konungsfjölskyldan er í þriggja daga opinberri heimsókn í Bretlandi. Í sérstökum hátíðarkvöldverði bauð Elísabet Bretlandsdrottning hana velkomna og athygli vakti að þar gegndi Camilla, eiginkona Karls Bretaprins, sinni fyrstu konunglegu embættisskyldu, eftir að hún og Karl gengu í hjónaband síðasta vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×