Erlent

Sýrlendingar vilja rannsaka morðið á Hariri

MYND/AP

Sýrlensk stjórnvöld segjast reiðubúin að hefja eigin rannsókn á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Hins vegar hafna þau rannsókn Sameinuðu þjóðanna á morðinu og segja hana ekki hlutlausa.

Dethlev Mehlis, Þjóðverjinn sem fór fyrir rannsókn Sameinuðu þjóðanna, lagði í gær til að Sýrlendingar myndu sjálfir setja á fót óháða rannsóknarnefnd vegna morðsins á Hariri. Slík rannsókn yrði þó að fara fram í sátt við alþjóðasamfélagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×