Hryllilegt ástand í Pakistan 11. október 2005 00:01
Engin von þykir til þess að nokkur finnist á lífi á hamfarasvæðunum í Suður-Asíu. Þegar björgunarmenn og hjálpargögn tóku loksins að berast þangað fór að rigna, og nú er það vatnsflaumur sem hamlar björgunarstarfinu. Það var fyrst seint í gær sem hjálp tók að berast á hamfarasvæðin en í dag breyttist það aftur. Úrhellisringing olli því að umferð um nýrudda vegi stöðvaðist, aurskriður féllu á þá og þyrlur gátu ekki flogið. Þetta gerir björgunarliðinu erfitt um vik og eykur enn á eymdina hjá þeim sem þarfnast hjálpar. Um leið sloknar vonin um að takist að bjarga fleirum á lífi úr húsarústum. Þeir sem geta reyna að flýja svæðið. Þar er ekkert að fá að bíta eða brenna; húsaskjól er lítið sem ekkert og þau hús sem standa eru talin hættuleg; og önnur hjálp er af skornum skammti. Þetta á ekki síst við í stærstu borginni Pakistan-megin landamæranna, Muzaffarabad, sem fyrir helgi var blómleg hundrað þúsund manna borg. Nú er þar ekkert að finna nema rústir, lík og fólk í öngum sínum. Reiði og örvænting valda því að fólk stelur nauðþurftum og áflog hafa brotist út. Mustafa Qurshi, íbúi í Muzaraffabad, sagði íbúa tilneydda til að verða sér út um bensín þar sem hvorki sé til bensín á bensínstöðvum né heldur sé hjálp að fá hjá yfirvöldum í Pakistan. "Konur okkar og börn eru heima stórslösuð og við verðum að koma þeim á sjúkrahús með öllum tiltækum ráðum," sagði Mustafa. Í bænum Balakot hrundu þrír skólar og stór hluti barnanna fórst. Þeim sem var bjargað var komið fyrir á bráðabirgðasjúkrahúsum sem komið hefur verið upp en ástandið þar er heldur ekki beisið. Eahri Rome, læknir á svæðinu, segir lækna og hjúkrunarfólk gera eins og þeir geti en þó vanti fleira fólk, gögn og lyf. Í Balakot hafa björgunarmenn einnig miklar áhyggjur af aurskriðum vegna rigningarinnar. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna áætla að ekki sé þörf á minna en nærri sautján milljörðum króna til hjálparstarfa á svæðinu, þar sem talið er að allt að fjörutíu þúsund hafi týnt lífi.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira