Ekki streita sem veldur magasári 3. október 2005 00:01
Tveir ástralskir læknar fá Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í ár fyrir uppgötvun sem hefur gjörbylt lífi milljóna manna. Þið sem vinnið mikið og haldið að þið séuð að fá magasár af streitu, getið andað léttar. Það er ekki streita sem veldur magasári heldur sýkill. Þetta uppgötvuðu tveir ástralskir læknar og hljóta fyrir það Nóbelsverðlaunin í ár. Barry Marshall og Robin Warren gerðu þessa uppgötvun árið 1982 en það tók áratug að vinna og taka í notkun lyf til að vinna bug á helicobacter pylori sýklinum. Sigurður Guðmundsson, landlæknir, segir þetta tvímælalítið vera eina af mestu uppgötvunum í klínískri læknisfræði á undanförnum áratugum. Uppgötvunin hefur haft veruleg áhrif á líf, heilsu og æviskeið milljóna manna um allan heim. Um það bil áttundi hver Íslendingur þjáðist af magsári áður en Marshall og Warren komu til sögunnar. Stór hluti þjóðarinnar var því krónískt veikur. Sú tíð er liðin. Bjarni Þjóðleifsson, yfirlæknir, segir að fram að uppgötvuninni hafi verið talið að um lífstílssjúkdóm og stress væri að ræða. Ekkert slíkt sé orsök sjúkdómsins, núna sé þetta sýkingarsjúkdómur sem sé eytt með vikukúr og þá sé fólk læknað fyrir lífstíð. Marshall og Warren mættu mótlæti þegar þeir komu fyrst fram með tilgátu sína og fóru óvenjulegar leiðir til að sanna hana. Kollegar Marshalls trúðu honum ekki til að byrja með og þá fór hann út í þá sérstöku rannsóknaraðferð að hann gleypti stóran skammt af bakteríum sjálfur og fékk öll einkenni sem búast máttti við. Það var kornið sem fyllti mælinn til að sýna kollegum hans að hann væri að segja satt.
Erlent Fréttir Mest lesið Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Sjá meira