Ruddust í gegnum girðingar 3. október 2005 00:01
Hundruð Afríkubúa brutust í gegnum margra metra háar gaddavírsgirðingar á landamærum Marokkós og spænska landsvæðisins Melilla í morgun, í von um að komast ólöglega til Spánar. Um þrjú hundruð manns tókst ætlunarverkið, en margir voru sárir eftir. Spænska lögreglan telur að alls hafi um 700 manns tekið þátt í áhlaupinu. Fyrst þurfti að komast yfir þriggja metra háa gaddavírsgirðingu og svo aðra sem er tvöfalt hærri. Um 300 manns komust í gegn þegar girðingarnar létu undan þunga fólksins og var þeim skipað um borð í rútur sem fluttu þá í yfirfullar flóttamannabúðir. Þetta er ekki einstakt tilfelli, svona hópáhlaupum hefur fjölgað undanfarnar vikur. Fimm létu lífið þegar 300 manns reyndu að komast inn í spænsku borgina Ceuta sem er einnig sunnan við Gíbraltarsundið aðfaranótt fimmtudagsins og virðist sem marokkóskir landamæraverðir hafi skotið þá. Fólkið kemur flest frá fátækustu löndum Afríku sunnan Sahara og lítur á spænsku borgirnar sem fyrsta áfangann á leiðinni til Spánar þar sem flestir sem komast yfir fá á endanum landvistarleyfi eða tækifæri til að komast yfir til Spánar. Sumir eru sendir þangað á meðan unnið er í þeirra málum og þá láta margir sig hverfa á meðan og hefja nýtt líf í landinu. Bæði spænsk og marokkósk yfirvöld reyna nú að stemma stigu við þessu og hafa stóraukið gæslu á landamærunum og hækkað girðingarnar, en allt kemur fyrir ekki. Löngun fólksins og þrá eftir betra lífi er einfaldlega öllu yfirsterkari. Alls hafa um tólf þúsund manns reynt að komast inn í Melilla á árinu og er ekkert útlit fyrir að dragi úr straumnum í nánustu framtíð.
Erlent Fréttir Mest lesið Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Erlent Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Innlent Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Erlent Danmörk „pínulítið land“ með „pínulítinn her“ Erlent Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Innlent Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Innlent Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Innlent „Hef hvergi hallað réttu máli“ Innlent Fleiri fréttir Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Ítalar lögðu hald á skip frá Rússlandi Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila Bein útsending: Flytja fimm þúsund tonna eldflaug á skotpall fyrir tunglskot Danmörk „pínulítið land“ með „pínulítinn her“ Hótar tollum á ríki sem standa með Grænlendingum Hafa náð einu og hálfu prósenti af Úkraínu á þremur árum Milljónir Bandaríkjamanna hafi þungar áhyggjur vegna Grænlands Yfirvöld sögð rukka háar fjárhæðir fyrir afhendingu líka mótmælenda Fyrrverandi forseti dæmdur í fimm ára fangelsi „Þetta er ekki það sem við samþykktum“ Tók við verðlaunapeningnum og hyggst eiga hann Hafi afhent Trump Friðarverðlaun Nóbels Krefjast enn að fá að senda sérsveitarmenn til Mexíkó Veiki geimfarinn kominn aftur til jarðar Tóku enn eitt skipið Trump hótar að siga hernum á mótmælendur Kennir Selenskí enn og aftur um Ólafur Ragnar við CNBC: Afleiðingarnar „gífurlegar“ ef Bandaríkin tækju Grænland með valdi Þingmenn sem Trump sagði heimska lúffuðu Witkoff segir annan áfanga friðaráætlunarinnar hafinn Musk fellst á að hætta að framleiða kynferðislegar myndir en bara sums staðar Hætta vinnslu umsókna innflytjenda frá 75 ríkjum Trump segir stjórnvöld í Íran hætt að drepa mótmælendur Stuðningur við Grænland ómetanlegur og hvetur Íslendinga til að mæta Sjá meira
Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila