Samþykktu viðræður við Tyrki 3. október 2005 00:01
Austurríkismenn gáfu eftir nú undir kvöld og samþykktu að aðildarviðræður Evrópusambandsins við Tyrki gætu hafist. Þeir lýstu því yfir í gær að þeir gætu ekki samþykkt að Tyrkland yrði fullgildur meðlimur, of margir Evrópubúar séu á móti því og nauðsynlegt sé að hlusta á borgarana. Tyrkir brugðust ókvæða við en undirbúningur fyrir viðræðurnar hefur staðið árum saman. Formlegar aðildarviðræður áttu að hefjast klukkan þrjú síðdegis í Lúxemborg, en á fundi utanríkisráðherra aðildarlanda Evrópusambandsins í nótt, tilkynntu Austurríkismenn að þeir gætu ekki stutt fulla aðild Tyrklands að sambandinu. Tyrkir hafa beðið árum saman eftir því að formlegar viðræður gætu hafist og voru fjúkandi reiðir Austurríkismönnum. Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, segir að ef Evrópusambandið vill vera stórveldi og ef það vill koma í veg fyrir árekstra ólíkra menningarheima sé nauðsynlegt að mynda bandalag ólíkra menningarheima. Þau öfl sem vilji ekki að Tyrkjir verði hluti af Evrópusambandinu séu þau sömu og vilji ekki bandalag ólíkra menningarheima. Mikill meirihluti Austurríkismanna er á móti aðild Tyrklands, samkvæmt skoðanakönnunum, mest vegna menningarmunar, en Tyrkir telja 72 milljónir og eru flestir múslímar. Kannanir benda til þess að rétt rúmur meirihluti íbúa Evrópusambandsins sé á sama máli. Það breytir ekki þeirri staðreynd að það var löngu ákveðið að hefja viðræður við Tyrki í dag, og markmiðið er að Tyrkir verði á endanum fullgildir meðlimir Evrópusambandsins. Svo virðist sem að Plassnik hafi loks gefið eftir nú undir kvöld, en meginkrafa Austuríkismanna var að þeim möguleika væri haldið opnum að Tyrkir fengju einhvers konar tvíhliða samning, en yrðu ekki formlegur hluti sambandsins. Armenar eru sú þjóð sem styðja Austurríkismenn harðast, en þeir eru ósáttir við að Tyrkir hafi aldrei viðurkennt fjöldamorðin í Armeníu árið 1915 sem tilraun til þjóðarmorðs og vilja ekki sjá að Tyrkland verði hluti af Evrópusambandinu. Fjöldi Armena mætti fyrir utan fundarstað í Lúxemborg í dag til að mótmæla viðræðunum. En þótt viðræðurnar hefjist á morgun, þá er það einungis fyrsta skrefið á langri leið, því búist er við að viðræðurnar taki hátt í áratug.
Erlent Fréttir Mest lesið Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Sjá meira