Mandela leiðtogi heimsins 3. október 2005 00:01
Nelson Mandela fékk flest atkvæði í könnun BBC á því hverjir ættu að sitja í „heimsríkisstjórninni“, ef slík stjórn væri sett á laggirnar. Fimmtán þúsund manns tóku þátt í könnuninni þar sem fólk var beðið um að velja ellefu einstaklinga af hundrað manna lista sem það myndi vilja sjá í stjórninni. Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, fékk næst flest atkvæði og þriðji var trúarleiðtoginn Dalai Lama. Engin kona varð á meðal ellefu efstu en sú sem fékk flest atkvæði var Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar á Búrma, en það dugði henni aðeins í þrettánda sætið. Næst á eftir henni í hópi kvennanna varð Hillary Clinton sem var í sextánda sæti. Meira en þriðjungur stjórnarinnar er skipaður milljarðamæringum úr viðskiptalífinu því þeir eiga hvorki fleiri né færri en fjóra fulltrúa af ellefu. Þetta eru Bill Gates, forstjóri Microsoft, Richard Branson, eigandi Virgin, Steve Jobs, forstjóri Apple, og loks kaupsýslumaðurinn og heimspekingurinn George Soros. Af öðrum sem „kosnir“ voru í heimsríkisstjórnina má nefna Desmond Tutu erkibiskup og Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Stjórnin lítur annars svona út: 1 - Nelson Mandela 2 - Bill Clinton3 - Dalai Lama4 - Noam Chomsky 5 - Alan Greenspan 6 - Bill Gates7 - Steve Jobs8 - Desmond Tutu9 - Richard Branson10 - George Soros11 - Kofi Annan Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, var einu sæti frá því að ná inn í stjórnina en George Bush Bandaríkjaforseti var hins vegar töluvert frá því, í fertugasta og þriðja sæti. Einn erkióvina hans, Fídel Kastró, var sjö sætum ofar en Bush í þrítugasta og sjötta sæti. Í flokki tónlistarmanna varð Bono, söngvari U2, efstur í fjórtánda sæti og af íþróttamönnum varð knattspyrnugoðið Pele hlutskarpast í tuttugasta og fimmta sæti. Þá má nefna það að fólk virðist frekar vilja að Osama bin Laden sitji í heimsríkisstjórninni en knattspyrnumaðurinn David Beckham því hryðjuverkaleiðtoginn varð í sjötugasta sæti, eða tveimur sætum ofar en Beckham.
Erlent Fréttir Mest lesið Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Sjá meira