Fjórða hvert barn í hættu 1. október 2005 00:01
Eitt af hverjum fjórum fæddum börnum í heiminum er í hættu vegna sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Unicef, er talið að ein komma fjórir milljónir barna undir fimm ára aldri deyi af völdum sjúkdóma, sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Bólusetning kemur í veg fyrir dauðsföll um tveggja milljóna barna á hverju ári og þegar ný bóluefni, til dæmis gegn niðurgangi, verða aðgengileg, er talið að hægt sé að bjarga lífi rúmlega milljón barna til viðbótar. Rúmlega tíu milljónir barna undir fimm ára deyja árlega og er talið að hægt væri að koma í veg fyrir tvo þriðju þessara dauðsfalla með einfaldri bólusetningu. Helstu dánarorsakir nýfæddra barna eru mislingar, lungnabólga, kíghósti og stífkrampi. Í rúmlega hundrað löndum eru níu af hverjum tíu börnum bólusett. Í skýrslu Unicef, segir að samt sem áður sé árangur í sjötíu og fjórum löndum ekki nógu góður til að þau geti náð settum markmiðum, en á sérstöku barnaþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2002 skuldbatt alþjóðasamfélagið sig til að tryggja að að minnsta kosti 90% barna undir eins árs aldri fengju reglulegar bólusetningar fyrir árið 2010. Ann Veneman, framkvæmdastjóri Unicef, segir að bólusetning sé áhrifaríkasta og ódýrasta leiðin til að bjarga lífi barna og því sé brýnt að halda í þann árangur sem náðst hafi í mörgum löndum og auka hann í öðrum. Skýrsla Unicef sýnir að mikill mismunur er á aðgengi barna að slíku. Árið 2003 voru 90% barna í iðnríkjunum bólusett. Aðeins um helgmingur barna í vestur og mið Afríku er bólusettur reglulega, og hefur slíkt aukist mikið í mörgum fátækum ríkjum, þótt betur megi ef duga skal. Þannig voru 84% barna í Eritreu bólusett árið 2003, miðað við 18% árið 1990. Unicef útvegar bóluefni til meira en 40% barna í heiminum og árlega fer fjórðungur útgjalda Barnahjálparinnar í slíkt.
Erlent Fréttir Mest lesið Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Sjá meira