Erlent

Varar uppreisnarmenn í Súdan við

Jan Egeland, yfirmaður neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna, hefur varað uppreisnarmenn í Darfur-héraði í Súdan við því að haldi þeir áfram að ráðast á lögreglu og starfsmenn hjálparstofnana í héraðinu, gætu þeir glatað allri samúð alþjóðasamfélagsins. Vopnahlé var samþykkt í héraðinu í lok síðasta árs en uppreisnarmenn hafa rænt nokkrum starfsmönnum hjálparsamtaka og segja þá vera njósnara á vegum stjórnvalda. Stjórnvöld eru grunuð um að veita fé og vopn til þeirra sem hafa herjað á fátæka íbúa Darfur-héraðs undanfarin misseri, rænt búpeningi og brennt þorp þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×