Vilja skjóta kóalabirni 3. mars 2005 00:01
Kóalabirnir og kengúrur eru sjálfsagt þekktustu dýrategundir Ástralíu. Íbúar Kengúrueyju hafa þó fengið nóg af kóalabjörnum og krefjast þess að fá að skjóta þá. Kengúrueyja er við suðurströnd Ástralíu, skammt frá borginni Adelaide. Þar er fjölbreytt dýralíf en kóalabirnir hafa fjölgað sér afar hratt á eyjunni - fjöldi þeirra hefur tvöfaldast á fimm ára fresti undanfarið. Lengi hefur verið deilt um hvað eigi að gera í þessari offjölgun bjarnanna en íbúarnir vilja helst fá að skjóta þá. Dýravinir mega hins vegar ekki til þess hugsa að þúsundir þessara fallegu dýra verði skotin á færi og hafa barist gegn öllum slíkum fyrirætlunum. Þeir eru hins vegar upp á kant við umhverfissinna sem segja kóalabirnina smám saman vera að eyða upp gúmmítrjánum á eyjunni, sem gæti haft gríðarleg áhrif á bæði fuglalíf og skordýr sem lifa á trjánum. Áströlsk stjórnvöld eru líka hikandi í sinni afstöðu og óttast að það skaði ímynd landsins ef leyft verði að skjóta kóalabirnina sem eru nokkurs konar tákn landsins. Átak var gert fyrir nokkrum árum þar sem 4000 birnir voru geldir en nú eru þeir veiddir einn og einn og sendir til meginlandsins 20-30 saman. Það hefur hins vegar lítið að segja til að draga úr offjölgun. Viðurlögin við að skjóta kóalabjörn eru allt að tveggja ára fangelsisdómur en íbúar Kengúrueyju eru víst farnir að láta það sem vind um eyru þjóta og skjóta þá samt, með þeim rökum að þeir séu plága.
Erlent Fréttir Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Fleiri fréttir Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Sjá meira