Erlent

66 manns fyrir rétti

Réttarhöld hófust í dag yfir sextíu og sex mannns í Angers í Frakklandi í einu stærsta kynferðisbrotamáli í sögu Frakklands. Hinir ákærðu, 39 karlar og 27 konur, eru sakaðir um allt frá því að hafa selt börn í vændi til barnanauðgana. 45 börn tengjast þessu máli. Ákæruvaldið segir að stór barnavændishringur hafi starfað frá ársbyrjun 1999 til ársins 2002. Þar hafi fimmtán pör boðið fólki að beita börn sín kynferðislegu ofbeldi gegn vægri greiðslu eða mat. Yngsta barnið sem selt var var tveggja mánaða gamalt. Í alvarlegustu tilfellunum eiga sakborningar allt að 20 ára fangelsi yfir höfði sér, verði þeir fundnir sekir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×