Erlent

Breti fær fjórfaldan lífstíðardóm

Brennuvargur sem kveikti í hóteli í Birmingham í Englandi á páskum í fyrra með þeim afleiðingum að fjórir gestanna, þrír karlar og ein kona, brunnu inni, var í dag dæmdur í fjórfalt lífstíðarfangelsi. Dómarinn sagði við brennuvarginn, sem er 31 árs fyrrverandi eiturlyfjaneytandi, að hann þyrfti að afplána að minnsta kosti 28 ár áður en hann gæti sótt um reynslulausn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×