Erlent

Umhverfis jörðina í einum rykk

Milljónamæringurinn Steve Fossett heldur ótrauður áfram leiðangri sínum umhverfis jörðina, þrátt fyrir að hafa misst rúmlega eitt tonn af eldsneyti skömmu eftir flugtak. Fossett er nú yfir Kyrrahafinu og nálgast Hawaii. Þegar hann hefur náð þangað er ætlunin að meta hvort eldsneytið sem eftir er dugi alla leið að vesturströnd Bandaríkjanna. Þegar síðast fréttist voru rúmlega tvö tonn af eldsneyti eftir á tanknum og bregður mjög til beggja vona hvort það dugi alla leið. Takist Fossett að klára ferðina verður hann fyrstur allra til þess að fara einn síns liðs umhverfis hnöttinn án millilendingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×