Erlent

Dæmdur fyrir Balí-árásina

Múslímaklerkurinn Abu Bakhar Bashir var í nótt dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir aðild sína að sprengjuárás í næturklúbbi á Balí árið 2002 sem varð 202 að bana. Bashir var hins vegar sýknaður af ákæru um að hafa skipulagt árásina og hann var einnig sýknaður af því að hafa staðið á bak við árás á hótel í Jakarta á Indónesíu árið 2003 sem varð tólf manns að aldurtila. Bandaríkjamenn hafa þegar lýst yfir óánægju með dóminn sem þeir telja allt of vægan. Talsmaður sendiráðs Bandaríkjanna í Jakarta segir að með tilliti til þess hve alvarlegar sakir Bashirs hafi verið hljóti dómurinn að vera mikil vonbrigði. Hins vegar beri Bandaríkjamenn fulla virðingu fyrir sjálfstæði dómstóla á Indónesíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×