Stjórnarskráin samþykkt 25. október 2005 11:50
Stjórnarskrá Íraks hefur verið samþykkt. Endanlegar tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslu bárust nú rétt fyrir hádegi og samþykktu tæplega áttatíu prósent Íraka stjórnarskrána. Sjötíu og átta prósent kjósenda í Írak samþykktu stjórnarskrána, en tuttugu og eitt prósent hafnaði henni, samkvæmt opinberum tölum sem kjörstjórn kynnti á tólfta tímanum. Þáttaka í þjóðaratkvæðagreiðslunni var sextíu og þrjú prósent, sem þykir gott miðað við ástandið í Írak. Það var í raun vitað að meirihluti landsmanna hefði samþykkt stjórnarskrána, en augu allra beindust að héraðinu Nineveh, þar sem súnnítar eru fjölmennir. Ef tveir þriðju hlutar kjósenda þar hefðu hafnað stjórnarskránni, hefði það þýtt endalok hennar. Í héruðunum Anbar og Salahaddin lá þegar fyrir að yfirgnæfandi meirihluti hefði hafnað stjórnarskránni og ef þriðja héraðið hefði bæst í þann hóp hefði stjórnarskráin fallið. En þó að meirihluti kjósenda í Nineveh hafi hafnað stjórnarskránni, voru nógu margir henni hlynntir til að hún yrði samþykkt á landsvísu. Fjörutíu og fimm prósent kjósenda Nineveh sögðu já við stjórnarskránni, sem þar með hefur formlega verið samþykkt. Það þýðir að í þingkosningum sem haldnar verða í Írak þann 15. desember, verður þingið kjörið til fjögurra ára. Hefðu kjósendur hafnað stjórnarskránni hefði þingið aðeins setið í eitt ár og reynt að setja saman nýja stjórnarskrá.
Erlent Fréttir Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira