Erlent

Stjórnarskráin samþykkt

Stjórnarskrá Íraks hefur verið samþykkt. Endanlegar tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslu bárust nú rétt fyrir hádegi og samþykktu tæplega áttatíu prósent Íraka stjórnarskrána.

Sjötíu og átta prósent kjósenda í Írak samþykktu stjórnarskrána, en tuttugu og eitt prósent hafnaði henni, samkvæmt opinberum tölum sem kjörstjórn kynnti á tólfta tímanum. Þáttaka í þjóðaratkvæðagreiðslunni var sextíu og þrjú prósent, sem þykir gott miðað við ástandið í Írak.

Það var í raun vitað að meirihluti landsmanna hefði samþykkt stjórnarskrána, en augu allra beindust að héraðinu Nineveh, þar sem súnnítar eru fjölmennir. Ef tveir þriðju hlutar kjósenda þar hefðu hafnað stjórnarskránni, hefði það þýtt endalok hennar.

Í héruðunum Anbar og Salahaddin lá þegar fyrir að yfirgnæfandi meirihluti hefði hafnað stjórnarskránni og ef þriðja héraðið hefði bæst í þann hóp hefði stjórnarskráin fallið.

En þó að meirihluti kjósenda í Nineveh hafi hafnað stjórnarskránni, voru nógu margir henni hlynntir til að hún yrði samþykkt á landsvísu. Fjörutíu og fimm prósent kjósenda Nineveh sögðu já við stjórnarskránni, sem þar með hefur formlega verið samþykkt.

Það þýðir að í þingkosningum sem haldnar verða í Írak þann 15. desember, verður þingið kjörið til fjögurra ára. Hefðu kjósendur hafnað stjórnarskránni hefði þingið aðeins setið í eitt ár og reynt að setja saman nýja stjórnarskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×