Erlent

Fossett setti heimsmet

Auðkýfingurinn Steve Fossett setti heimsmet í gærkvöld þegar hann varð fyrsti maðurinn til að fljúga hnattflug einsamall, viðstöðulaust og án millilendingar eða eldsneytisáfyllingar. Richard Branson, stofnandi Virgin-samsteypunnar og félagi Fossetts í ævintýramennskunni, fjármagnaði flugið. Fossett lenti flugvél sinni, GlobalFlyer, á flugvellinum í Salinas í Kansas rétt fyrir klukkan átta. Þá hafði hann verið 67 klukkustundir á flugi og flogið alls 37 þúsund kílómetra. "Þetta var eitthvað sem mig hafði langað að gera lengi," sagði Fossett eftir að hann steig út úr flugvélinni. Branson var einnig hæstánægður með félaga sinn. Hann opnaði kampavínsflösku og lét gusuna vaða yfir Fossett, svipað og kappakstursökumenn gera eftir að hafa unnið keppni. Um tíma leit út fyrir að Fossett tækist ekki ætlunarverk sitt því í fyrrakvöld lenti hann í miklum vandræðum þar sem eldsneytisbirgðir vélarinnar virtust mun minni en hann hélt. Fossett, sem er sextugur, á einnig annað heimsmet því fyrir fáeinum árum fór hann einsamall hringinn í kringum jörðina í loftbelg án þess að millilenda. Það tók Fossett hins vegar fimm tilraunir að setja það heimsmet.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×