Erlent

Fossett að takast ætlunarverkið

Búist er við að flugkappinn og skátinn Steve Fossett lendi í Kansas í Bandaríkjunum eftir stutta stund. Takist það verður hann fyrstur manna til að fljúga einn í kringum hnöttinn án þess að millilenda. Fossett lagði upp í ferðina á þriðjudaginn. Hann lenti reyndar í vandræðum á leiðinni þar sem bensínbirgðir reyndust vera minni en reiknað hafði verið með en hann var hins vegar heppinn með vind og loftstrauma og það virðist ætla að fleyta honum alla leið. Samtals er flugleiðin rúmlega 37 þúsund kílómetrar.
MYND/REUTERS



Fleiri fréttir

Sjá meira


×