Erlent

Eldklerkur dæmdur

Dómstóll í Indónesíu dæmdi í gær múslimaklerkinn Abu Bakar Bashir í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir aðild hans að sprengjuárásinni á Balí haustið 2002. Bashir var hins vegar sýknaður af alvarlegri ákærum, til dæmis að hafa fyrirskipað árásirnar. 202 týndu lífi í árásunum, flestir erlendir ferðamenn. Bandarísk og áströlsk stjórnvöld hafa gagnrýnt dóminn yfir Bashir harðlega, þar sem þau telja hann of vægan. Þau hafa haldið því fram að Bashir sé leiðtogi Jemaah Islamiyah-hryðjuverkasamtakanna en þau eru sögð tengjast Al Kaída.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×