Erlent

Efast um tengsl við al-Kaída

Gyrt sprengjubelti. Mörgum Jórdönum finnst grunsamlegt að al-Rishawi hafi ennþá verið með sprengjubeltið þegar hún var handtekin fjórum dögum eftir árásirnar.
Gyrt sprengjubelti. Mörgum Jórdönum finnst grunsamlegt að al-Rishawi hafi ennþá verið með sprengjubeltið þegar hún var handtekin fjórum dögum eftir árásirnar.

Vart er talað um annað í Jórdaníu en Sajida Mubarak Atrous al-Rishawi sem játaði í sjónvarpsútsendingu að vera fjórði árásarmaðurinn í hryðjuverkunum í Amman í síðustu viku þar sem 57 manns létu lífið.

Al-Rishawi varð heimsfræg að endemum á sunnudag þegar hún kom fram í sjónvarpi á sunnudag, gyrt sprengjubelti, og viðurkenndi að hafa mistekist að sprengja það í brúðkaupsveislu á Radisson SAS-hótelinu í síðustu viku. Eiginmanni hennar tókst hins vegar að sprengja sína sprengju.

"Ég sat og horfði á þetta og ég gat ekki skilið hvernig hún gat sagt frá þessu af slíkri yfirvegun," sagði Adel Fathi í samtali við AP-fréttastofuna, en þrír ættingjar hans fórust í brúðkaupinu. "Úr hverju er þetta fólk?" bætti hann við beiskum rómi.

Margir Jórdanar efast hins vegar um að al-Rishawi hafi nokkur tengsl við al-Kaída heldur sé jórdanska lögreglan einungis að láta líta út fyrir að hún sé að ná árangri.

"Ég trúi þessu ekki. Of margar þversagnir eru í málinu og þetta kemur ekki heim og saman," sagði Mohammed al-Fakh­iri, símasölumaður frá Amman. "Hún hefði byrjað á að losa sig við sprengjubeltið og því er afar ólíklegt að lögreglan hafi tekið hana fasta nokkrum dögum síðar með það vafið um sig."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×