Erlent

Bjerregaard er sigurstrangleg

SØren Pind
SØren Pind

Í dag verður kosið til sveitarstjórna í Danmörku. Kosningabaráttan í Kaupmannahöfn hefur verið lífleg undanfarnar vikur enda eru frambjóðendur þriggja stærstu flokkanna litríkar og mjög ólíkar persónur. Stefnumálin hafa ekki bara verið í brennidepli. Allt stefnir í að hin 64 ára Ritt Bjerregaard, borgarstjóraefni Jafnaðarmanna, vinni stórsigur í Kaupmannahöfn.

Hún hefur verið áberandi í dönskum stjórnmálum í nær 35 ár og var á áttunda áratugnum ráðherra og þingmaður en starfaði síðan fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Stjórnmálaskýrendur segja Bjerregaard hafa háð gamaldags en árangursríka kosningabaráttu sem gengur út á að ná persónulegu sambandi við kjósendur. Hún hafi því verið áberandi á götum úti, ferðast um borgina á hjóli og rætt við fólk. Þetta virðist hafa heppnast því samkvæmt könnun sem blaðið gerði í síðustu viku vilja 46 prósent kjósenda í Kaupmannahöfn að hún verði næsti borgarstjóri.

Þrátt fyrir ungan aldur er þingmaðurinn Søren Pind, borgarstjóraefni Venstre, að bjóða sig fram í þriðja skipti. Stefna hans í innflytjendamálum hefur verið gagnrýnd í baráttunni og önnur stefnumál Venstre hafa því ekki fengið mikla athygli. Dönsku blöðin segja Pind ekki hafa verið með puttana á púlsinum og því ekki náð til kjósenda, þrátt fyrir fokdýra baráttu.

Óhætt er hins vegar að segja að oddviti Radikale Venstre í Kaupmannahöfn sé senuþjófur kosningabaráttunnar í Kaupmannahöfn. Klaus Bondam heitir hann og er leikari að mennt og samkynhneigður. Hann hefur litla reynslu af stjórnmálum en þrátt fyrir það bætir flokkur hans við sig töluverðu fylgi ef marka má skoðanakannanir. Hann hefur sagt að samstarf við Danska þjóðarflokkinn komi ekki til greina en sá flokkur hefur harða stefnu í málefnum innflytjenda. Eins hefur hann sagt að ef borgaraflokkarnir myndi meirihluta komi ekki annað til greina en að hann verði borgarstjóri. Hann muni ekki styðja Søren Pind.

Aftur á móti stefnir allt í að þeir verði í minnihluta á næsta kjörtímabili en Ritt Bjerregaard muni hafa tögl og haldir í stjórn borgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×