Erlent

Verður líklega framseldur

Fujimori fyrrverandi forseti Perú kom óvænt til Chile.
Fujimori fyrrverandi forseti Perú kom óvænt til Chile.

Alberto Fuji­mori, fyrrverandi forseti Perú, var handtekinn í gærmorgun, skömmu eftir að hann kom í óvænta heimsókn til Chile. Fujimori er eftirlýstur í heimalandi sínu vegna spillingar og mannréttindabrota í valdatíð sinni á árunum 1990 til 2000.

Hann hefur undanfarin ár verið í útlegð í Japan en er sagður ætla að bjóða sig fram til forseta Perú á nýjan leik. Perúmenn hafa enn ekki farið fram á að fá Fujimori framseldan en fastlega er búist við að beiðni þar að lútandi berist fljótlega. Á meðan mun forsetinn fyrrverandi dúsa á bak við lás og slá í Chile.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×