Harmsaga harðjaxlsins blinda 8. nóvember 2005 04:00 Blair, Blunkett og blindrahundurinn Sadie.
Í síðustu viku sagði einn litríkasti stjórnmálamaður Bretlands, David Blunkett, af sér ráðherraembætti í annað sinn á einu ári. Braust áfram af eigin rammleik Dapurleg bernska Blunkett gæti allt eins verið úr bók eftir Charles Dickens. Þegar hann fæddist árið 1947 kom í ljós að hann var blindur, hann var settur á heimavistarskóla fjögurra ára gamall og átta árum síðar lést faðir hans þegar hann féll ofan í tank fullan af sjóðandi vatni í verksmiðju. Engu að síður tókst Blunkett að brjótast áfram af eigin rammleik. Aðeins 22 ára varð hann borgaráðsmaður í Sheffield og árið 1987 varð hann svo þingmaður Verkamannaflokksins í Sheffield Brightside. Þegar flokkurinn komst í ríkisstjórn árið 1997 varð Blunkett menntamálaráðherra en 2001 færði hann sig svo um set og settist í stól innanríkisráðherra. Hann þótti harður í horn að taka og sú gagnrýni sem hann hlaut fyrir óbilgirnina virtist ekki bíta á hann heldur þvert á móti virtist hann hafa gaman af því að taka á "airy, fairy, libertarians," eða frjálslyndum vindhönum. Tvöfalt fall Í desember 2004 varð Blunkett hins vegar að segja af sér þegar upp komst að hann hafði hraðað umsókn barnfóstru Kimberly Quinn, ástkonu sinnar, um vegabréfsáritun. Samband þeirra fór svo út um þúfur og í kjölfarið hófst bitur deila um hvort Blunkett væri faðir tveggja drengja sem hún hafði eignast á meðan þau voru saman. Blunkett settist aftur í ríkisstjórn Blairs eftir kosningarnar í vor, þá sem ráðherra atvinnu- og lífeyrismála, en í síðustu viku varð hann að segja af sér vegna þess að honum láðist að greina frá tekjum og hagsmunatengslum sínum þegar hann var á milli ráðherraembætta.
Erlent Mest lesið Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Varar við því að stórvirkjun í Skagafirði verði útilokuð Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Þingfundi ítrekað frestað meðan þingflokksformenn funda Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Fimm sviptir réttindum fyrir að aka of hratt á vinnusvæði Innlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Fleiri fréttir Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Segir Spánverja munu borga fyrir að borga ekki nóg Lögðu grunninn að „sterkara, sanngjarnara og banvænna“ NATO Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Biðst afsökunar á gyðingahatri Svíþjóðardemókrata Diddy ætlar ekki að bera vitni Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Segir vopnahlé í höfn Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Sjá meira