Segist ekkert muna eftir börnunum 3. ágúst 2005 00:01
Móðirin sem talin er hafa myrt níu kornabörn sín í Þýskalandi segist ekkert muna eftir börnunum. Hún hafi verið dauðadrukkin þegar þau fæddust í heimahúsi. Eiginmaður konunnar og eldri börn hennar, sem eru undir tvítugt, segjast heldur ekki hafa tekið eftir því að hún var með barni. Konan segir þýsku lögreglunni að hún hafi átt börnin dauðadrukkin og muni fyrir vikið ekkert eftir því sem gerðist, utan í einu tilfelli. Eftir fæðingu hafi hún lagt teppi yfir barnið og sofnað áfengisdauða og þegar hún rankaði við sér var barnið ekki lengur á lífi. Hún neitar því hins vegar með öllu að hafa beitt börnin sín ofbeldi. Dagblaðið Märkische Oderzeitung hefur eftir heimildarmönnum innan lögreglunnar að talið sé að konan hafi kæft öll börnin með kodda en það hefur ekki verið staðfest. Lík níu kornabarna fundust á sunnudag í blómapottum, fiskabúri og fleiri ílátum á lóð foreldra konunnar í austurhluta Þýskalands. Grunur beindist strax að konunni og var hún handtekin. Sérfræðingar rannsaka nú bein barnanna til að skera úr um kyn þeirra og nákvæman aldur þegar þau voru drepin. Leitarhundar eru notaðir til að kanna hvort að hugsanlega leynist fleiri lík á lóðinni.
Erlent Fréttir Mest lesið Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fundu kannabisplöntur við húsleit Innlent Ofbeldi í garð fangavarða eykst Innlent Dettifoss komið til hafnar Innlent Fleiri fréttir Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sjá meira