Rannsaka ásakanir um leynifangelsi 4. nóvember 2005 05:45 Fangi í Guantanamo. Fulltrúa Rauða krossins hefur grunað að bandarísk yfirvöld feldu vissa fanga fyrir eftirliti. MYND/AP
Talsmenn Evrópusambandsins, Evrópuráðsins, Alþjóða Rauða krossins og óháðra mannréttindasamtaka boðuðu í gær allir rannsókn á því hvað hæft væri í fregnum um að bandaríska leyniþjónustan CIA ræki leynileg fangelsi í Austur-Evrópulöndum, þar sem hún héldi meintum hryðjuverkamönnum föngnum og stundaði yfirheyrslur yfir þeim. Talsmenn Rauða krossins sögðust hafa sent Bandaríkjastjórn fyrirspurn um málið og farið fram á aðgang að fangelsunum ef tilvist þeirra skyldi verða staðfest. Fulltrúar Alþjóða Rauða krossins hafa verið þeir einu sem fengið hafa að heimsækja meinta al-Kaída-liða sem haldið er föngnum í herbúðum Bandaríkjahers í Guantanamo á Kúbu og víðar, en þeir hafa ítrekað lýst áhyggjum af óstaðfestum fréttum af því að bandarísk yfirvöld feldu vissa fanga þar sem eftirlitsmenn Rauða krossins næðu ekki til. Forsvarsmenn Evrópuráðsins, sem er sú stofnun sem hefur það hlutverk að hafa eftirlit með mannréttindamálum í álfunni, boðuðu einnig rannsókn. Talsmenn mannréttindasamtaka tóku í sama streng. Friso Roscam Abbing, talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði upplýsinga verða leitað hjá öllum ríkisstjórnum ESB-ríkjanna 25. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar hafa neitað að tjá sig um málið eftir að dagblaðið The Washington Post birti grein þar sem fullyrt er að CIA hafi í fjögur ár - í nafni "stríðsins gegn hryðjuverkum" - haldið úti kerfi leynilegra fangelsa erlendis, þar á meðal í nokkrum Austur-Evrópulöndum. Blaðið hefur núverandi og fyrrverandi leyniþjónustumenn og erindreka bæði frá Bandaríkjunum og öðrum löndum fyrir fréttinni. Ráðamenn í tíu löndum vísuðu því á bug í gær að slík leynifangelsi væru hýst í þeirra lögsögu. Rúmenía, Pólland, Lettland, Ungverjaland og fyrrverandi Sovétlýðveldin Georgía og Armenía voru þar á meðal.
Erlent Tengdar fréttir Gruna Pólland og Rúmeníu Talsmenn Mannréttindavaktarinnar (Human Rights Watch), sögðu í New York í gær að samtökin hefðu heimildir fyrir því að CIA hafi flutt meinta hryðjuverkamenn sem teknir voru höndum í Afganistan til Póllands og Rúmeníu. 4. nóvember 2005 05:00 Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Fleiri fréttir Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Sjá meira
Gruna Pólland og Rúmeníu Talsmenn Mannréttindavaktarinnar (Human Rights Watch), sögðu í New York í gær að samtökin hefðu heimildir fyrir því að CIA hafi flutt meinta hryðjuverkamenn sem teknir voru höndum í Afganistan til Póllands og Rúmeníu. 4. nóvember 2005 05:00