Að minnsta kosti sjö látnir 23. október 2005 22:00
Minnst sjö manns létu lífið þegar fellibylurinn Wilma gekk yfir Júkatan-skaga í Mexíkó um helgina. Bylurinn stefnir nú í átt að suðurhluta Flórída. Enn ein hitabeltislægðin hefur myndast í Karíbahafi. Mikil eyðilegging blasir við í strandbænum Cancun í Mexíkó þar sem fellibylurinn Wilma gekk yfir. Bærinn er umflotinn vatni og fjöldi heimila og hótela hefur eyðilagst og er rafmagnslaust á stóru svæði. Þúsundir ferðamanna eru enn strandaglópar á staðnum og hafast við í neyðarskýlum og bíða þess að veðrið gangi niður. Matur og lyf hafa verið sendir til bæjanna Cancun og Playa del Carmen, sem urðu hvað verst úti í óveðrinu á Júkatan-skaga, en margir, aðallega gamalmenni, eru hjálparþurfi. Enn ein hitabeltislægðin hefur nú fæðst í Karíbahafi, skammt frá Haítí. Nú dugar hins vegar ekki lengur latneska stafrófið til, við að gefa lægðunum karlmanns- og kvenmannsnöfn, því í fyrsta skipti frá því byrjað var að gefa þeim nöfn með stöfum frá A til W, verður að nota gríska stafrófið og hefur lægðin við Haítí verið nefnd Alfa. Hún er 22. hitabeltislægðin á svæðinu í haust, sem er mesti fjöldi frá því byrjað var að skrá þær fyrir 150 árum. Athygli vekur að fellibylurinn Wilma sveigði skyndilega til norðausturs, og stefnir nú að suðurhluta Flórída og segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur, að það sé vegna stöðu annarra veðurkerfa á svæðinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira