Hátt í tuttugu þúsund létust 9. október 2005 00:01
Nú er talið að hátt í tuttugu þúsund manns hafi týnt lífi í gríðarsterkum jarðskjálfta sem reið yfir norðurhluta Pakistans, Afganistans og Indlands í gærmorgun. Skjálftinn var 7,6 á Richter og hefur sterkari skjálfti ekki mælst á þessu svæði í meira en öld. Verst er ástandið í pakistanska hluta Kasmírhéraðs, þar sem heilu þorpin jöfnuðust við jörðu. Framanaf sagði talsmaður pakistanska hersins sem stýrir björgunaraðgerðum að líklega væru fórnarlömbin allt að tvö þúsund, en sú tala hefur nær tífaldast á nokkrum klukkustundum. Bandaríkjamenn, Bretar, Ástralir, Kínverjar og Japanar hafa þegar lagt fram fé og hjálpargögn og margar þjóðir hafa boðið afnot af herþyrlum og öðrum búnaði. Svissnesk stjórnvöld eru tilbúin með flugvél til að fljúga neyðarteymi á vegum Sameinuðu þjóðanna til Pakistans og tyrkneski Rauði hálfmáninn er þegar búinn að senda tvær vélar með hjúkrunarlið og hjálpargögn. Meira að segja Indland, sem lengi hefur deilt við Pakistan um Kasmírhérað, hefur boðið fram aðstoð sína. Alþjóða björgunarsveit Slysavarnarfélagsins Landsbjargar bauð fram krafta sína þegar í gærmorgun, en í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að stjórnvöld í Pakistan hafi ákveðið að þiggja hjálp frá þeim þjóðum, sem hafi bein stjórnmálatengsl við landið. Af þessum ástæðum muni ekki verða þörf fyrir aðstoð alþjóðasveitarinnar. Áfram verður þó fylgst með aðgerðum í gegnum Sameinuðu þjóðirnar og ef forsendur breytast, verður staðan endurmetin í samvinnu við Utanríkisráðuneytið.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira