Þýsku kosningunum lýkur í dag 2. október 2005 00:01
Kosið er til þýska sambandsþingsins í borginni Dresden í austurhluta Þýskalands í dag, en kosningum þar var frestað fyrir tveimur vikum vegna dauðsfalls eins frambjóðanda frá borginni. Vonir eru bundnar við að úrslitin í Dresden muni leysa þá stjórnmálakreppu sem ríkt hefur í landinu. Kjörstaðir voru opnaðir í Dresden í morgun og verður þeim lokað klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma, en um tvö hundruð og tuttugu þúsund manns eru á kjörskrá. Bæði Gerhard Schröder, kanslari og leiðtogi Jafnaðarmanna, og Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, vona að kosningaúrslitin í Dresden verði afgerandi, þannig að ljóst verði hvort þeirra verði næsti kanslari landsins. Bæði hafa gert tilkall til kanslaraembættisins frá því kosið var til sambandsþingsins, 18. september síðastliðinn. Flokkur Merkels hlaut flest atkvæði, eða þremur sætum fleiri á þinginu en Jafnaðarmenn, en hvorugum flokknum tókst þó að tryggja sér meirihluta á þinginu. Stjórnmálaskýrendur telja að úrslitin í Dresden breyti litlu um þá niðurstöðu sem þegar liggur fyrir. Líklegt þykir þó að flokkur Schröders komi betur út og bæti jafnvel við sig einu eða tveimur þingsætum, sem myndi styrkja stöðu leiðtogans í stjórnarmyndunarviðræðum. Merkel og Schröder hafa tvívegis fundað að undanförnu um möguleikann á stjórnarmyndun stóru flokkanna, en eins og staðan er núna gætu viðræðurnar tekið marga mánuði þar sem bæði Schröder og Merkel krefjast þess að fá að leiða næstu stjórn landsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Sjá meira