Vill reka Írana úr SÞ vegna ummæla Íransforseta 27. október 2005 10:00 Shimon Peres sést hér ásamt Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels. MYND/AP
Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels, hefur farið fram á það að Írönum verði vísað úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta Írans um að þurrka ætti Ísrael út af landakortinu. Stjórnir verstrænna ríkja stíga nú fram hver af annarri til þess að fordæma orðin. Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, lét orðin falla á fundi í Teheran sem hafði yfirskriftina "Heimurinn án síonisma" og sagði enn fremur að hver sá sem skrifaði undir viðurkenningu á Ísraelsríki hefði skrifað undir uppgjöf hins íslamska heims. Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels, segir að slík ummæli eigi ekki að líðast í heiminum í dag og hvetur til þess að Írönum verði útskúfað úr Sameinuðu þjóðunum vegna málsins. Aðspurður útilokar hann ekki að sækjast eftir umboði til að fara fram á það. Þá hafa yfirvöld í Bretlandi, Frakklandi, á Spáni og í Kanada öll kallað á sendiherra Írans í löndum sínum og krafist skýringa á ummælunum. Íran hefur neitað að viðurkenna Ísraelsríki og styður aðgerðir uppreisnarhópa Palestínumanna, eins og Íslamska jihad sem lýst hefur yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás í Ísrael í gær sem kostaði fimm manns lífið. Þá hafa samskipti Vesturlanda og Írans stirnað nokkuð eftir að harðlínumaðurinn Ahmadinejad tók við embætti forseta fyrr á árinu en helsta deiluefnið er kjarnorkuáætlun Írana sem Bandaríkjamenn segja yfirvarp til að framleiða kjarnavopn.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira