Bretar beittu hvítum fosfór í Írak 17. nóvember 2005 02:30 Breti Í Basra. Styr stendur um notkun fosfórsprengja en alþjóðasáttmálar banna ekki notkun þeirra gegn hermönnum, aðeins borgurum.
Bandaríkjamenn hafa viðurkennt að hafa notað sprengjur fylltar hvítum fosfór gegn uppreisnarmönnum í Falluja á síðasta ári. Bretar hafa einnig notað efnið en aðeins til reykframleiðslu. Bandaríkjamenn hafa sætt mikilli gagnrýni vegna notkunar á fosfórfylltum sprengjum í Írak að undanförnu eftir að ítalska ríkissjónvarpið sýndi myndir frá Falluja. Slík vopn valda fólki sársaukafullum bruna og notkun þeirra gegn borgurum er bönnuð samkvæmt alþjóðasáttmálum. Þvert á fyrri yfirlýsingar viðurkenndi bandaríska landvarnaráðuneytið í fyrradag að hafa notað fosfórsprengjur í umsátrinu um Falluja. Barry Venable, talsmaður varnarmálaráðuneytisins, hafnaði því hins vegar í samtali við BBC að slík vopn væru efnavopn eins og gagnrýnendur hafa haldið fram. "Þær voru notaðar gegn vígamönnum óvinanna," sagði Venable í samtali við BBC. Á meðan á umsátrinu um Falluja stóð haustið 2004 var þar ennþá fjöldi óbreyttra borgara enda komust þeir hvorki lönd né strönd. Vandséð er hvernig bandarískir hermenn gátu gert greinarmun á þeim og uppreisnarmönnum. Því sagði Paul Rodgers, prófessor við friðarrannsóknastofnun Bradford-háskólan í Bretlandi, við fréttamann BBC að fosfórsprengjur væru efnavopn þegar þeim væri beint að borgurum, eins og líkur eru á að gert hafi verið í Falluja. Í gær upplýsti svo talsmaður Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands, að hvítum fosfór hefði verið beitt í hernaðinum í Írak, en einungis til að hylja átakavettvang í reyk. Hann vildi hins vegar ekki tjá skoðun forsætisráðherrans á notkun bandaríska hersins á efninu heldur sagði það einkamál Bandaríkjamanna.
Erlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Fleiri fréttir Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Sjá meira