Erlent

Stjórnarskrá Ítalíu breytt

Efri deild ítalska þingsins lagði í gærkvöld endanlega blessun sína yfir stjórnarskrárbreytingar sem ríkisstjórn Silvio Berlusconi hefur barist fyrir. Stjórnarliðar á þingi fögnuðu samþykktinni ákaft.

Stjórnarskrárbreytingarnar eru þær umfangsmestu frá því stjórnarskráin gekk í gildi árið 1948, en þær eru mjög umdeildar. Stórnarandstaða miðju-vinstriflokka hefur boðað að hún muni sjá til þess að breytingarnar verði bornar undir þjóðaratkvæði og berjast fyrir því að þeim verði hnekkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×