Erlent

Ólga vegna pyntinga í Írak

Ibrahim al-Jaafari  forsætisráðherra Íraks á blaðamannafundi í Bagdad í gær.
Ibrahim al-Jaafari forsætisráðherra Íraks á blaðamannafundi í Bagdad í gær.

Yfir 170 vannærðir íraskir fangar sem fundust í fangelsi á vegum íraska innanríkisráðuneytisins virðast hafa verið pyntaðir, að því er forsætisráðherra Íraks greindi frá í gær. Forsvarsmaður súnní-múslima sagði fangana vera súnní-araba og að ríkisstjórnin, sem sjía-múslimar fara fyrir, hefði lengi skellt skollaeyrum við kvörtunum um misþyrmingar á föngum innanríkisráðuneytisins.

Þessar fréttir komu fram tveimur dögum eftir að hermenn úr bandaríska setuliðinu umkringdu og tóku yfir stjórn á byggingu í því hverfi Bagdad þar sem umrætt fangelsi innanríkisráðuneytisins reyndist vera.

Íraski forsætisráðherrann, Ibrahim al-Jaafari, lét þess hins vegar ekki getið hvort bandarísku hermennirnir hefðu átt þátt í að uppgötva fangelsið.

Talsmaður íraska innanríkisráðuneytisins sagði á mánudag að rannsókn yrði gerð á því hvað hæft væri í ásökunum um að starfsmenn ráðuneytisins hefðu pyntað fanga sem grunaðir væru um þátttöku í skæruliðauppreisninni í landinu.

Al-Jaafari sagði að fangarnir hefðu verið fluttir "á betri stað" þar sem þeim væri veitt læknishjálp. Leiðtogi stærsta stjórnmálaflokks súnní-araba sagði að hann hefði sjálfur talað við ráðamenn stjórnarinnar - þar á meðal Al-Jaafari sjálfan - um pyntingar í fangelsum innanríkisráðuneytisins en þeir hefðu látið þau orð sem vind um eyru þjóta og kallað fangana "öfl fyrrverandi valdhafa".

Flestir uppreisnarmenn eru súnní-arabar, sem eru um þriðjungur landsmanna en höfðu svo til öll völd í landinu í stjórnartíð Saddams Husseins. Sjía-múslimar stjórna innanríkisráðuneytinu. Talsmenn alþjóðlegu mannréttindasamtakanna Amnesty international fögnuðu boðaðri rannsókn á ásökununum en hvöttu Al-Jaafari til að láta hana ná til allra ásakana um pyntingar.

Talsmaður Alþjóða Rauða krossins í Genf sagði að þetta væri það fyrsta sem samtökin heyrðu um fangahald íraska innanríkisráðuneytisins en þau hefðu æskt frekari upplýsinga um það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×