Reynir á mörk tjáningarfrelsis 10. nóvember 2005 06:45 Åke Green. Fjölmiðlafólk sækir að prestinum fyrir utan Hæstarétt í Stokkhólmi í gær. Borðanum kom stuðningsfólk hans upp.
Prestur í sænskum hvítasunnusöfnuði varði fyrir Hæstarétti Svíþjóðar í gær fullyrðingar sínar um að samkynhneigð væri "sem krabbameinsæxli á þjóðarlíkamanum". Presturinn, Åke Green, flutti stólræðu fyrir tveimur árum þar sem hann lét þessi ummæli falla, en fyrir þau var hann kærður fyrir brot á lögum sem banna hatursáróður. Árið 2003 var þeim breytt þannig að þau næðu líka yfir slíkan áróður gegn samkynhneigðum. Málið þykir reyna á mörk tjáningarfrelsis í Svíþjóð. Green var dæmdur sekur í héraðsdómi en áfrýjunardómstóll hnekkti þeim dómi. Ríkissaksóknari áfrýjaði málinu þá til Hæstaréttar. Bein útsending var frá réttarhaldinu í gær, sem er mjög óvenjulegt í Svíþjóð. Green sagði í vitnisburði sínum að í stólræðunni hefði hann viljað vara homma við því að lífsstíll þeirra myndi leiða til "eilífs skilnaðar" við Guð. "Sofi tveir karlmenn hvor hjá öðrum, eða geri tvær konur það, er það ónáttúra, rétt eins og barnagirnd," tjáði hann réttinum. Málið hefur vakið alþjóðlega athygli. Talsmenn trúarsamtaka segja sakfellingu jafngilda ógn við tjáningar- og trúfrelsi. Aðrir segja að sýkna myndi opna allar gáttir fyrir svæsnari árásum gegn gyðingum, múslimum og hommum af hálfu hægriöfgamanna.
Erlent Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Sjá meira