Uppþot út fyrir landsteinana 8. nóvember 2005 05:00 Bílabrennur í Berlín. Skemmdarvargar skeyttu skapi sínu á í það minnsta fimm bifreiðum í hverfinu Moabit í Berlín og í Brussel var svipað uppi á teningnum.
Uppþotin í Frakklandi eru farin að breiðast út til annarra landa Evrópu en í fyrrinótt voru bílar brenndir í höfuðborgum Þýskalands og Belgíu. Í gær lést franskur maður af barsmíðum sem hann hlaut í óeirðunum í síðustu viku. Elleftu nóttina í röð kom til óspekta í Frakklandi og hefur ástandið aldrei verið verra. Skemmdarvargar óðu uppi í 274 bæjum í landinu og kveiktu þeir í ríflega 1.400 bifreiðum. 36 meiddust í átökum og 395 voru handteknir. Í Grigny, einni af útborgum Parísar. Skotið var á lögreglumenn með loftrifflum og þurfti að flytja tvo þeirra á sjúkrahús með nokkra áverka. Í Colombes, annarri útborg Parísar, létu unglingar grjóti rigna yfir strætisvagn og hlaut 13 mánaða gamalt barn nokkur meiðsli þegar það fékk stein í höfuðið. Í síðustu viku voru uppþotin nánast bundin við úthverfi Parísar en nú virðast þau heldur í rénun þar á meðan ástandið versnar annars staðar í landinu. Þannig var kveikt í kirkjum í Lens og Sete og í Saint-Etienne var eldur lagður að skólum. Alls hafa 4.700 bifreiðar verið eyðilagðar og 1.200 manns settir á bak við lás og slá. Lögregla í París greindi frá fyrsta dauðsfallinu í tengslum við óeirðirnar í gær en þá lést Jean-Jacques Le Chenadec, 61 árs gamall íbúi úthverfisins Stains, á sjúkrahúsi í höfuðborginni. Grímuklæddir menn börðu hann til óbóta í síðustu viku þar sem hann reyndi að slökkva eld í ruslatunnu fyrir utan heimili sitt. Teikn eru á lofti um að óeirðirnar séu farnar að breiðast út til annarra landa álfunnar. Í Brussel voru bílar brenndir fyrir utan aðaljárnbrautarstöð borgarinnar og í Moabit, einu af verkamannahverfum Berlínar, voru skemmdarverk unnin á farartækjum og öðrum mannvirkjum. Enda þótt yfirvöld í löndunum reyndu að gera sem minnst úr ólgunni viðurkenndu þau að erfiðleikar innflytjenda við að laga sig að þjóðfélaginu væru ekki bundnir við Frakkland. "Aðstæður eru aðrar í Frakklandi en hérlendis," sagði Wolfgang Schäuble, innanríkisráðherraefni Angelu Merkel, væntanlegs Þýskalandskanslara. "Við verðum hins vegar að aðstoða innflytjendur betur við að laga sig að þjóðfélaginu, sérstaklega þá sem yngri eru. Lykilatriði er að þeir nái góðum tökum á þýskri tungu." Í gær reyndi Philippe Douste-Blazy, utanríkisráðherra Frakklands, að sannfæra starfsbræður sína í aðildarríkjum Evrópusambandsins um að "Frakkland væri ekki hættulegt land" á fundi þeirra í Brussel. Líklega hefur hann talað fyrir daufum eyrum því yfirvöld nokkurra landa, þar á meðal Ástralíu, Bandaríkjanna, Bretlands, Rússlands og Þýskalands hafa varað þegna sína við að fara um þær slóðir þar sem vargöldin hefur ríkt síðustu daga. Kveikja uppþotanna var dauði tveggja unglinga af innflytjendaættum í Clichy-sous-Bois, úthverfi Parísar, en þeir töldu lögreglu vera á eftir sér. Sá atburður virðist hafa verið kornið sem fyllti mælinn hjá fjölda fólks, einkum múslimum frá Norður-Afríku, sem býr nánast á jöðrum samfélagsins í hrörlegum innflytjendahverfum. Atvinnuleysi er mikið hjá þessum hópi samfélagsins og þar er glæpatíðni einnig há. Sambúðin við aðra þjóðfélagshópa gengur brösulega og virðast frönsk stjórnvöld vera nánast í óleysanlegri úlfakreppu af þeim sökum.
Erlent Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Sjá meira