Erlent

Þúsundir innlyksa

Beðið eftir bensíni. Íbúar á flóðasvæðunum, hér í Cancun í Mexíkó, þurfa að sýna mikla þolinmæði til að komast yfir eldsneytisdropa á þeim fáu bensínstöðvum sem opnar eru.
Beðið eftir bensíni. Íbúar á flóðasvæðunum, hér í Cancun í Mexíkó, þurfa að sýna mikla þolinmæði til að komast yfir eldsneytisdropa á þeim fáu bensínstöðvum sem opnar eru.

Íbúar Flórída, strandhéraða Mexíkó og annarra svæða sem fellibylurinn Wilma gekk yfir eru í óða önn að taka til eftir hamfarirnar. Ríkisstjóri Flórídafylkis Jeb Bush, bróðir Georgs W. Bush, hefur axlaði ábyrgð á seinagangi við björgunarstörf vegna eftirkasta fellibylsins.

"Við höfum ekki náð þeim afköstum sem við vildum," sagði hann á blaðamannafundi í Flórída í gær. Aðstoðin væri ekki nógu markviss.

Langar biðraðir voru við bensínstöðvar á Flórída og þúsundir ferðamanna í mexíkóska ferðamannabænum Cancun biðu þess enn að fá flug- eða rútufar þaðan.

Um 22.000 ferðamenn urðu innlyksa í borginni og öðrum ferðamannastöðum við Mexíkóflóann, sem urðu illa úti af völdum Wilmu. Fellibylurinn hefur þar með valdið ferðamannaiðnaði Mexíkó miklum búsifjum.

Að minnsta kosti fimm dauðsföll á Flórída voru rakin til Wilmu, fjögur í Mexíkó, eitt á Jamaíka og tólf á Haítí. Wilma var 21. fellibylurinn á svæðinu í ár, en ekki er vitað til að svo margir fellibylir hafi myndast á einu misseri frá því skráningar hófust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×