Leikur kattarins að músinni 24. apríl 2005 00:01
Færeysku meistararnir í HB voru engin fyrirstaða fyrir Íslandsmeistara FH í leiknum um Atlantic-bikarinn í gær. Hafnfirðingar sigruðu auðveldlega, 4-1. FH hafði mikla yfirburði í Egilshöllinni í gær og voru gestirnir frá Færeyjum í raun heppnir með að fara ekki heim með stærra tap á bakinu. Það tók Hafnfirðinga smá tíma til að komast í gang en eftir að Tryggvi Guðmundsson hafði komið þeim yfir um miðbik fyrri hálfleiks fóru leikmenn FH fyrst að njóta sín. Liðið spilaði á köflum frábæran fótbolta og ef mið er tekið af árstíma er ekki hægt að segja annað en að FH-ingar líti vel út. Allan Borgvardt, Tryggvi og Atli Viðar Björnsson komu FH í 4-0 en Emil Nolsöe Leifsson náði að klóra í bakkann fyrir mjög ósannfærandi HB-inga þegar fimm mínútur lifðu leiks. Eins og áður segir voru FH-ingar gríðarlega sannfærandi og svo virðist sem Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, hafi þegar náð að mynda mjög samstillta og heilsteypta liðsheild. "Ég er mjög ánægður með okkar leik hér í dag. Þetta var besti leikur okkar á undirbúningstímabilinu. En mótherjarnir voru nú svo sem ekkert sérstaklega sterkir," sagði Ólafur í samtali við Fréttablaðið eftir leikinn. Ekki er hægt að segja annað en að nýju leikmennirnir smellpassi inn í leik liðsins. Auðun Helgason og Tommy Nielsen voru svo öruggir í miðri vörninni að það mætti halda að þeir hefðu spilað hvor við hlið annars í tíu ár. Tryggvi Guðmundsson átti fína spretti, skoraði tvö góð mörk og sýndi að hann er ekki dauður úr öllum æðum. Þá er enn ónefndur danski miðjumaðurinn Dennis Sims sem virðist við fyrstu sýn vera einhver alöflugasti erlendi leikmaður sem spilað hefur hér á landi. Hann býr yfir frábærri sendingatækni, hvort sem það er með hægri eða vinstri fæti, og það var eftir að hann var með boltann að bestu sóknir FH litu dagsins ljós. Með spilara af hans getu við hlið Heimis Guðjónssonar er miðja FH ógnarleg á að líta. Ljóst er að gestirnir í HB áttu ekki góðan dag og voru þeir algjörlega yfirspilaðir í gær. "Við vorum ekki góðir í dag, ég viðurkenni það," sagði Heini Fernandez, stjóri liðsins eftir leikinn. "Ég er mjög hrifinn af FH-liðinu. Tæknilega eru þeir mjög góðir og þeir eru miklu betri en KR-liðið sem við mættum í fyrra."
Íslenski boltinn Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fleiri fréttir Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Elvari og félögum sópað í sumarfrí „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Russell byrjar á ráspól í Barcelona Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Magdeburg tapaði í undanúrslitum Stemningin á Times Square engri lík Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Uppgjör: Markalaust jafntefli þrátt fyrir fjörugan leik Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Sjá meira