Sport

Leikur kattarins að músinni

Færeysku meistararnir í HB voru engin fyrirstaða fyrir Íslandsmeistara FH í leiknum um Atlantic-bikarinn í gær. Hafnfirðingar sigruðu auðveldlega, 4-1. FH hafði mikla yfirburði í Egilshöllinni í gær og voru gestirnir frá Færeyjum í raun heppnir með að fara ekki heim með stærra tap á bakinu. Það tók Hafnfirðinga smá tíma til að komast í gang en eftir að Tryggvi Guðmundsson hafði komið þeim yfir um miðbik fyrri hálfleiks fóru leikmenn FH fyrst að njóta sín. Liðið spilaði á köflum frábæran fótbolta og ef mið er tekið af árstíma er ekki hægt að segja annað en að FH-ingar líti vel út. Allan Borgvardt, Tryggvi og Atli Viðar Björnsson komu FH í 4-0 en Emil Nolsöe Leifsson náði að klóra í bakkann fyrir mjög ósannfærandi HB-inga þegar fimm mínútur lifðu leiks. Eins og áður segir voru FH-ingar gríðarlega sannfærandi og svo virðist sem Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, hafi þegar náð að mynda mjög samstillta og heilsteypta liðsheild. "Ég er mjög ánægður með okkar leik hér í dag. Þetta var besti leikur okkar á undirbúningstímabilinu. En mótherjarnir voru nú svo sem ekkert sérstaklega sterkir," sagði Ólafur í samtali við Fréttablaðið eftir leikinn. Ekki er hægt að segja annað en að nýju leikmennirnir smellpassi inn í leik liðsins. Auðun Helgason og Tommy Nielsen voru svo öruggir í miðri vörninni að það mætti halda að þeir hefðu spilað hvor við hlið annars í tíu ár. Tryggvi Guðmundsson átti fína spretti, skoraði tvö góð mörk og sýndi að hann er ekki dauður úr öllum æðum. Þá er enn ónefndur danski miðjumaðurinn Dennis Sims sem virðist við fyrstu sýn vera einhver alöflugasti erlendi leikmaður sem spilað hefur hér á landi. Hann býr yfir frábærri sendingatækni, hvort sem það er með hægri eða vinstri fæti, og það var eftir að hann var með boltann að bestu sóknir FH litu dagsins ljós. Með spilara af hans getu við hlið Heimis Guðjónssonar er miðja FH ógnarleg á að líta. Ljóst er að gestirnir í HB áttu ekki góðan dag og voru þeir algjörlega yfirspilaðir í gær. "Við vorum ekki góðir í dag, ég viðurkenni það," sagði Heini Fernandez, stjóri liðsins eftir leikinn. "Ég er mjög hrifinn af FH-liðinu. Tæknilega eru þeir mjög góðir og þeir eru miklu betri en KR-liðið sem við mættum í fyrra."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×